|
|
21.03.2008 13:31:34 / helgag
Sælt veri fólkið og Valdís þar meðtalinn  Helga hérna að blogg, ójábbz ótrúlegt en satt, held barasta að ég hafi ekki bloggað síðan þetta nýja blogg kerfi kom á og vil ég koma því á framfæri að ég HATA ÞAÐ. Okey þar sem ég er búin hjala hérna örlítíð er ágætt tala um einhvað sem skiptir máli eins og t.d. Páskafríið mitt æðislega sem fer brátt að renna sitt skeið og það fær mig til að fella tár. Ég elska frí þar sem maður getur sofið út og horft á Friends og já ég keypti nefnilega síðustu fimm seríurnar af friends fyrir þetta páskafrí og er lítið búin að gera annað en horfa á friends, vinna og vera á páskabingóum. Og já ef þið vitið um einhvað páskabingó sem ég og Pálína getum mætt á endilega kommentið. En nú er ég bara ein heima familian í jeppaferð fram á morgun daginn og enginn til að elda handa mér. SVo ef þið viljið ólm elda handa mér þá bara bjalliði. En held að þetta sé gott í bili hef nákvæmlega ekkert merkilegt að segja!!!! Bæjókydóký
»
17.03.2008 21:24:43 / valdis
Hæhæ allt gott hérna á vellinum í páskafríinu, við Helga eigum deit á miðvikudaginn að þrífa bílana okkar!! JEIJ
En talandi um Helgu ehemmm
Helga mín, viltu gera það fyrir mig að blogga bara oggupínku ofurlítið blogg?!?!
Ekki það að ég get alveg komið með eitthvað meira sko, ekki málið... En góðir lesendur viljið þið ekki heyra eitthvað frá henni Helgu líka??
Kveðz Valdz
»
11.03.2008 08:34:08 / valdis
Já, það var farin afar vel heppnuð ferð í bústað um síðustu helgi, bekkjarpartý á föstudagskvöldinu og afmælispartý fyrir svanz á laugardagskvöldinu Mikill snjór var í Reykjaskógi en búið var að moka upp að bústaðnum okkar... Þurftum við hins vegar að byrja á því þegar við komum að vaða snjó upp fyrir hné til að komast upp að bústað til að ná í skóflu og moka okkur út að bíl svo auðveldara væri að ná í dótið sem þurfti að koma upp í bústað... Svo var nú von á alveg slatta af bílum þannig að ég ákvað að leika mér aðeins á jeppanum mínum með skóflu og þjappaði aðeins bílastæðin svo fleiri kæmust að  Helgin var í alla staði frábær, nema að heiti potturinn virkaði ekki, og meira að segja Gummi gat ekki lagað hann, og þá er nú mikið sagt... En þetta fór allt saman vel fram og heppanaðist allt vel... Mig langar bara að þakka fyrir helgina... vonandi að þetta verði gert aftur einhverntímann, en þá ætla ég ekki að panta bústað á mínu nafni, ég var alltof stressuð alla helgina... Og já það eru myndir af laugardagskvöldina inná http://www.myspace.com/hestafrikKveðja  Valdz
»
05.03.2008 23:31:59 / valdis
Já, ég er afar stolt manneskja...
Ég er svo heppin að vera fædd og uppalin við mikið þjóðarstolt hér á Fróninu okkar góða... Ísland er frábært, eins og sagt er "Ísland, bezt í heimi!" ég algjörlega elska snjóinn en ég elska líka þegar hann er ekki... Ég elska rigninguna, því að þá er tækifæri á að vera bara heima í kósýheitum... Ég elska þegar það er sól, því að þá geta allir verið á stuttermabol, þó það sé næstum frost, ég meina, það er sól... Ég elska veturinn hérna, ég elska sumarið hérna, ég elska vorið hérna og ég elska haustið hérna... Á Íslandi er allt gott...
Ég er stolt yfir því að vera hluti af svona samheldinni þjóð, við stöndum saman í blíðu og stríðu og erum stolt af Þorskastríðinu... Við borðum viðbjóðslegan mat (hrútspungar kommon) og ég er stolt af því, fallegustu landslagsmyndirnar eru teknar hér á landi og ég er svo stolt af því, ekkert land er fegurra en Ísland og við vitum það öll... Ísland, bezt í heimi...
Ég bý á Suðurlandi, sem er auðvitað besti fjórðungurinn af landinu, og er stolt af því... Á Suðurlandi eru bestu bújarðirnar, mesta sléttlendið, þótt það sé stutt upp á fjöll, á Suðurlandi er best að búa... Á Suðurlandi er hliðið að helvíti, Hekla og ég er stolt af því... Hér höfum við marga merkilega staði svo sem Gullfoss, Geysi og Þingvelli svo eitthvað sé nefnt... Suðurland er frábært og ég elska að búa þar!!!
Ég bý í Rangárvallasýslu... Það er frábært og ég er stolt af því... Hestamannafélagið Geysir sem starfar þar er eitt öflugasta hestamannafélag á landinu og í Rangárvallasýslu eru mörg af stærstu ræktunarbúum íslenska hestsins og ég er mjööög stolt af því...
Ég bý í Rangárþingi Eystra, hér höfum við Markarfljótið, líka Eyjafjöllin... Við höfum Þórsmörk, einn fallegasta stað á landinu sem allir Íslendingar verða að heimsækja einhverntímann á ævi sinni...
...Og svo má ekki gleyma hinum dásamlega Hvolsvelli, þar sem ég hef átt heima í næstum 19 ár, í sömu götunni, í sama húsinu, ég er svo mikið stolt af því... Ég vinn í Kjarval og rúnta á kvöldin og ég er stolt af því... Það er alltaf hægt að finna sér eitthvað að gera hér og þetta er friðsæll staður sem er samt hægt að skemmta sér á...
Með afar stoltum kveðjum
Valdís, fallegasti stoltasti Íslendingurinn...
»
02.03.2008 20:33:04 / helgag
<object width="425" height="350"> <param name="movie" value=" http://www.youtube.com/v/UKPFxa9fGLU"> </param> <embed src=" http://www.youtube.com/v/UKPFxa9fGLU" type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="350"> </embed> </object>
»
02.02.2008 17:56:17 / valdis
Já eins og þið sjáið hér fyrir neðan var hún Helga að skrifa um veðrið, and speaking of... Flott veður til að fara í jeppaferð um helgina og svo vildi nú bara til að hann Orri bauð mér með í jeppaferð. Ég ákvað að slá til, Alexandra er líka í þessari ferð með mér, en við erum í ferðinni núna, þurftum bara aðeins að skreppa til byggða, gaman að segja frá því... En með eru semsagt ég og Orri, Alexandra og Jakob, Tyrfingur og Eggert og Atli ætlar sennilega að koma í kvöld... allavega, áfram með söguna... Áætlað var að leggja af stað um klukkan 5 í gær en auðvitað var seinkun, við þekkjum þessa karla en ég stóð sveitt að troða í töskur frá 4-5 og var búin á þeim tíma sem leggja átti af stað, dugleg ég... En nei, þá var Orri ekki einu sinni búinn í vinnunni... Ok... Klukkan 7 leit allt vel út og við alveg næstum reddí að fara... Nei, ekki einu sinni láta þér detta það í hug... Brotnir felgboltar og eitt stykki Patrol úr leik í bili, Orri var um tíma að spá að fara ekki með, en þá hefði ég verið brjáluð því að ég hafði geðveikislega mikið fyrir því að finna einhvern til að vinna fyrir mig og sonna... En það fór svo að við Orri vorum farþegar til skiptis í Cruiser Tyrfings og Patrol Jakobs... Og ferðin gekk ágætlega, svona fyrir utan óþarfa krók inní Fljótshlíð áður en við tókum stefnuna að Keldum og þar innúr... Það var fínt, jahh jújú fínt, færi og ágæt sigling á okkur, stöku smá festing og smá lækur sem truflaði okkur aðeins... ...Svoooo losnaði öxull hjá Tyrfingi... þeir bara bjuggu eitthvað um þetta og við héldum áfram, sldið meira streð núna hjá Cruiser bara með drif á þrem þannig að hann var stundum hafður í spotta... nújæja, við vorum komin að Markarfljótinu og bara 6 km í skálann í loftlínu... Helvíti brött þessi síðasta brekka sem við komum niður að Fljótinu... ...Þáááá brotnaði drifskaft hjá Jakob... nú voru báðir bílarnir í hálfgeru lamasessi... Jakob reyndi mjög mikið og ekki til neins og komast aftur upp brekkuna, við erum að tala um að ég hef aldrei séð eins þrjóska manneskju... En þegar kukkan var eitthvað yfir 2 held ég var ákveðið að gista þarna... Í bílunum... Má ég minna á að það var yfir 20 stiga gaddur en logn og ótrúlega fallega stjörnubjart og ótrúlega falleg norðurljós allan tímann... ... Tyrfingur bjó fallega um fyrir þrjá aftur í Cruiser svo gátu tveir sofið frammí... En þetta var þannig að ég svaf á milli hjá Tyrfingi og Jakob aftur í og Eggert og Orri sváfu framí og grey Alexandra svaf ein í Patrol... Þetta var mjög spes verð ég að segja og ekki mikið pláss þarna aftur í... En það var mjög heitt verð ég að segja, enda var ég í 2 buxum og snjóbuxum og 2 peysum og 2 bolum, með húfu og trefil og í svefnpoka... Og það var kveikt á bílnum alla nóttinu, og ég prinsessan var sú eina með einangrunardýnu undir mér og var í miðjunni ooog var sú eina sem var það stutt að lappirnar snertu ekki hurðina að aftan svo að ég fékk ekki kulda þaðan... hehe... En allavega þá vöknuðum við svona þegar birti í morgun og við horfðum á sólarlagið, heyrðum í björgunarsveitinni sem lagði af stað um 9-10 held ég að sækja Cruiser og aðra farþega, Patrol var skildur eftir... Þannig að núna erum við í byggð, Orri að laga Patrol, Jakob ætlar með nýtt drifskaft innúr á eftir og Atli ætlar örugglega að koma með í kvöld... Þannig að við sjáum hvað setur og ég blogga um restina af ferðinni á morgun eða hinn, eða vonandi... Jeppaferðakveðjur Valdís Fjalla-Eyvinds... P.S. má ég segja ykkur að þetta er fyrsta jeppaferðin mín að vetri til síðan árið 2000... og ég hef eilega farið í mjög fáar sumarferðir líka!!!
»
25.01.2008 09:42:51 / helgag
....Veður er allajafnan eitthvað sem íslendingar tala of mikið um. ....Veður er líka eitthvað sem pirrar mig mikið þessa dagana ....Veður er líka eitthvað sem kemur í veg fyrir að ég mæti á réttum tíma í skólan. Þó að stundum fái maður frí í skólanum vegna veðurs var ekki svo, rútan fór og því urðum við Pálína líka að fara!!!! Vell við byrjuðum á því að festa okkur við Björkina á Hvolsvelli þar sem heil helling af köllum komu að losa okkur. Jæja við lögðum nú samt í hann og keyrðum hraðast á 70 km á klukkustund. já en sjaldan var það nú svo gott. Það tók okkur klukkutíma og gott betur en það að komast á selfoss. Ég vil fara heim leið og það byrtir svo ég verði ekki föst á Selfossi um helgina en kellingarnar á skrifstofunni segja að ég verði að vera hérna í allan dag. Ég vona svo innilega að veðrið fari að batna, nenni ekki að keyra heim í jafn vondu veðri og var áðan. Fyrsti tíminn minn féll niður vegna þess að það mættu svo fáir Svanhidur og Ólína komast ekki í skólan vegna þess að þær eru fastar. Spurning hvort að Valdís lætur sig hafa það. Ég er að spá í að flytja til Flórida þar sem er gott veður allt árið. Ég hata allan snjóinn úti. Nú ætla ég að fara að læra undir próf sem ég er að fara í á eftir, ef það þá verður vegna veðurs. 
Veit alveg að ég var ekki að keyra´á Öxnadalsheiði but örugglega samt svipað vont veður!
»
22.01.2008 09:33:51 / helgag
Dags daglega þoli ég ekki þegar veðrið er ekki gott, þegar það er rigning og rok og þess hátar veður, og veðrið sem var í síðustu viku snjókoma allan sólahringin er heldur ekki vinsælt. EN....... veðrið sem er í dag er flott veður, brjálað rok, rigning og óhugnalega mikið slabb!!! Vegna þess að í svoleiðis veðri er ekki hægt að keyra á Golfinum mínu á Selfoss og rúturnar fara heldur ekki á Selfoss svo að við litlu Hvolsvellingarnir erum veðurteft heima!! já ég veit!! Sorglegt. hehe nei segji sona. Ekki beint. 
Svo nú sit ég heima, búin að fara með bílinn minn í skoðun, jájá mins dugleg!!! og er að horfa á Wings of love eikker spænska þátt á stöð 2!!! En nó í bili, ætli maður ætti ekki að nota daginn til að læra fyrst svona stendur á ekki það að ég ætli mér að gera það!!!!!!
»
17.01.2008 21:06:07 / helgag
Klara vildi blogg og hún fær sko blogg þó svo að ég sé nánast óvirk í máli. Íslendingar létu Svía svo niðurlægja sig með því að skíta feitast upp á bak í leiknum áfram!!!!!! Hvað er MÁLIÐ 
ég öfunda nú ekki þetta fólk sem búið er að borga mörg hundruð þúsund fyrir að fá að fara til Noregs að horfa á landsliðið og svo skíta þeir bara upp á bak!!! Ég veit allavega ekki hvort ég hef áhuga að horfa á næsta leik!!! Það verður allavega eitthvað mikið að gerast svo að áhuginn vakni aftur. Þeir meiga sko alveg fara að hugsa sinn gang.
En ég nenni ekki meiru, best að fara að læra og reyna að hugsa um einhvað annað en þessa niðurlagingu!!!
»
08.01.2008 14:18:53 / helgag
Sit hér í mínum ástkæra skóla!!! Aha skólinn er semsagt byrjaður og daglegt líf utan búðarinnar að hefjast. Jájá þetta er allt gott og blessað allt saman og frekar notalegt að vera byrjuð aftur í skólanum!!! Þá svona er allavega kominn festa á lífið!!! En já ég ákvað að taka með einn dag já EINN dag í jólafrí og hann var í gær! Þeim degi eyddi ég hund veik á Selfossi að láta laga gleraugun mín!!! AHA FUN !!! En nú er ég að blogga mitt fyrsta blogg úr nýju tölvunni minna, jebbsí jebbs, fékk nýja tölvu í jólagjöf frá Mor og far og mormor!!! But nú þarf ég að haska mér í tíma!! einn af mínum 6 tímum á viku sem ég þarf að eyða í Náttúrufræði!!! AHA Helga Guðrún mesti anti Náttúrufræðingar sunnan Alpafjalla! Þetta verðu geðveikt! En er farinn, nú hlýtur Valdís að vera orðin sátt, henni fannst ég ekki vera að standa mig í þessu öllu!!! Síjabí jabb
»
03.01.2008 20:50:59 / valdis
Jæja, þá er spurning hvað maður ætlar að gera á nýja árinu... Janúar: Tími til að jafna sig eftir jólin, huga að því að fara á útsölur og hafa það gott undir teppi með kakó í vonda veðrinu...  Febrúar: Rýmingarútsölur, allt á 70% afslætti, tími til kominn að ná gallabuxum á góðu verði... Það stefnir allt í að fjárhagurinn verði í lagi hjá mér Mars: Sennilega verður bara allt á fullu í skólanum í þessum mánuði...  Apríl: Einhver afmæli hér... Anna Sif og Orri eiga afmæli, fyndið að hinn Orri á líka afmæli í þessum mánuði... anyway... Maí: Lokamánuður skólans ætlunin að ná öllum prófum takk fyrir pent... Og ekki má gleyma hestaferð í Þórsmörk seinni partinn  Júní: Afmælisferð inní Þórsmörk næstseinustu eða seinustu helgina  Nei, ég fæ ekki leið á Þórsmörk! Júlí: Landsmót Hestamanna á Hellu!! Djamm og flottir hestar   Ágúst: Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum   Og svo reyndar byrjar skólinn  September: Skóli... Yeah... Október: Meiri skóli... Er ekki búin að plana meira þessa mánuði en að einbeita mér að náminu... Nóvember: Ooog enn meiri skóli... Helga mín, er ekki stefnan á afmælispartý?! Jói bróðir á líka afmæli í þessum mánuði... Desember: FINALLY jólafrí frá skólanum Einar Bjarni á afmæli... Og auvitað jólin, held að þau verði bara góð...
»
30.12.2007 15:08:34 / valdis
Já er ekki kominn tími á eitt stykki blogg.. . Höfum ekki beinlínis verið duglegastar en við erum bara búnar að vera uppteknar, vinna og jólaundirbúninur og sonna... Maður er á rúntinum öll kvöld Ég fór til Egilstaða til múttu fyri jól, fór sko á miðvikudegi og var btw mætt einum og hálfum tíma fyrir flug á völlinn! Ætlaði sko ekki að missa af fluginu Var þarna fyrir austan í burtu frá öllum vinum mínum og ætlaði að koma heim á laugardeginum en nei ég gat ekki fengið hopp og það var flogið obbslega lítið útaf vondu veðri, að lokum komst ég ekki heim fyrr en á sunndagskvöldi, þá orðin soldið mikið mygluð og desperat að komast heim... Annars er alltaf gott að finna hvað allir sakna mín mikið þegar ég fer austur, ég heyrði frá Orra og Önnu alla dagana sem ég var þarna... það var reyndar gott fyrir þau að sakna mín aðeins, þá sáu þau hvað ég er ómissandi ein að missa sig í sjálfselsku en þau sögðu þetta! Já þið segið það... Gamlárskvöld á morgun! JEIJ! Góður matur, brennan, flugeldar, bara ég og pabbi, nema við bjóðum einhverjum að vera með okkur, og svo áramótaball!!!!! Það verður snilld, maður fór auðvitað í röð í gær til að kaupa miða en ég veit um nokkra sem ekki náðu miða... grey þeir... Eins og hinir eru náttla alltaf góðir og ég býst ekki við neinu öðru núna En annars er bara viðbjóslegt veður og 7 bílar fastir uppá Langjökli... 20 metrar á sekúndu, eigum við að ræða það eitthvað?!?!... var að koma frá Álftarhóli í nótt og það var ógeðslega hált og mikið rok en Bjarki er nú svo öruggur að hann kom okkur lifandi heim En jæja... kannski maður fari að gera eitthvað af sér í þessu roki... setja í þvottavél eða eikkað... nei nenni því ekki... er að pæla að leggjast í rúmið og reyna að pæla í því hvað Orri keypti handa mér í jólagjöf... já það er rétt, hann er ekki búinn að gefa mér það enn, sagðist bara hafa gleymt því, yeahhhh... En er þetta ekki að verða gott... bara að segja ykkur það getur vel verið að næsta blogg komi ekki frá mér fyrr en skólinn byrjar... Þangað til þá! Adios! Valdís H.
»
07.12.2007 22:38:57 / helgag
HEy bara að láta ykkur elskurnar vita að við erum ekki svona latar *hóst* heldur þá erum við bara á fulli í nokkru merkilegu sem einhverjum hálfvitum sem voru eitt sinn uppi ákváði að athuga hvað manneskjan kunni með því að láta því í PRÓF!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! ARRRRRG ég er reið Svona erum við
Er semsagt ekki að fíla það sko!!! En þess á milli þá sem við erum ekki í prófum eða að læra fyrir þá höngum við okkur til skemmtunar í KJARVALINu okkar AHA eða allavega ég hún Helga, er semsagt að vinna svona hálfandaginn þessa dagana. Jájá sagði það!!!
En já myndi svo ekkert búast við neitt miklu af okkur fyrr en á nýju ári, býst við að við verðum í Kjarval ansi mikið meðal annars um jólinn, jájá við erum að skreyta og höfum okkar eigið jólatré og erum að safna pökkum þangað að við höfum tíma um jólin getum við kannski opnað eins og einn og einn í kaffi og matarpásum, þannig endilega ef ykkur þykir vænt um okkur komiði þá með pakk 
Hlakka ógó til   Helga Guðrún Lárusdóttir
»
21.11.2007 21:06:01 / helgag
Kvöldið fólk Helga hér. Já síðan bloggað var hér síðast hefur margt gerst og þá einna helst að hún ég er orðin 18 ára!! Jájá bara orðin sjálfráða þó svo að mamma mín hafi tekið fram yfir hendur mér og bannað mér að fara í skóla á mán og þriðjudag!! Ekki mikið sjálfstæði þar á ferð!!! En í tilefni afmælismíns þá hélt ég smá fyrirpartý hérna heima hjá mér fyrir FSu ballið sem var seinna um kveldið. Partýið var gott en ballið aftur á móti ekki og vorum við eilega bara út í bíl allt ballið!!! En eitt markvert gerðist þó, mér og Klöru ásamt henni Huldu okkar var boðið að taka þátt í klámmynd ok!!! OG svo stukkum við út á ferð!!! Gaman að þessu, leiðinni heim eyddi ég svo í að drekka mjólkina svo þynkan myndi ekki hrella mig næsta dag, næsti dagur var samt ekki eins og planað var, ég var veik!! ekki þunn veik og ég var líka veik á Sunnudaginn og mánudaginn og kannski líka þriðjudaginn!!! Ég eyddi semsagt heilli fríhelgi í VEIKINDI!! ég er alltaf svo lucki person!!! SEIGÐU! But.. eins og maðurinn sagði, þá eru bara 7 litlir ljótir langir skóladagar eftir af þessari önn+audda þessi þrjú próf mín. Jólfríð planað, því verður ekki eitt á hlýrri sólarströnd eins og sumir hafa planað heldur í verslun á litlum stað út á landi kallaður Hvolsvöllur og versluninn mun víst bera nafnið Kjarval!!FUN!! HA!! reyndar verður það það þegar ég fæ útborgað!!! En spurning hvort þetta er ekki sjúklega langt blogg??? Efast um að neinn nenni að lesa þetta!! Tja sjáum til! Og eitt ég er búin að ákveða nánast allar mína örugglega 100 jólagjafir sem ég þarf að gefa geðveikt ánægð nú á bara eftir að versla þær sem verður gaman svona eftir næstu mánaðarmót. En Bæbbz!! P.s. Ég sakna geðveikt henar Kristrúnar systur minnar, geðveikt langt síðan ég hef hitt þig baby p.s.s.Afhverju get ég ekki skrifað svona langt bull í Landafræði????
»
12.11.2007 22:40:15 / valdis
Jæja, kannski komin tími á eitt stykki frá manneskjunni á miðjunni... nei djók... ég var alltaf í vörn eða marki, ég var sko að æfa mark og vitiði bara að ég varði sko vítaskot frá Hlíf... En þetta var í 9.bekk... Enn glæstari voru tilþrifin í 1. bekk þar sem ég var að æfa með strákum frá 1. upp í 4. bekk og þar á meðal var Jobbi nokkur frá Hellu, stór og mikill sem átti það til að sparka boltanun óþarflega fast í andlitið á mér... well... það gerðist held ég tvisvar, en allavega, ég fékk að sitja í fanginu á þjálfaranum út æfinguna og Sævald var voða næs við mig... Já þannig er nú það er ég er allt í einu komin með geggjaða skrifræpu... langar bara að segja voða mikið núna... Skólinn alveg að klárast og söngkeppni á fimmtudaginn og BALL á föstudaginn, nú verðum við Helga sko EKKI driverar og ég ætla að skilja símann eftir heima! Ok nei kannski ekki, það er orðinn smá siður hjá mér að hringja í Orra til að segja honum hvað er gaman hjá mér þegar ég er að skemmta mér einhversstaðar, og nei hann fær ekki að koma með því að hann er einfaldlega OF GAMALL fyrir svona framhaldsskólaböll, hann getur bara farið á kaffihús í Vík eða eitthvað þannig... Ég er alltaf í reið- og hestamennsku nú orðið í skólanum og það er voða gaman, reyndar með pínku pirrandi fólki í hóp sem getur einfaldlega ekki lært að hlusta einu sinni, það er sko meiri svörun og áhugi hjá hestunum heldur en nemendunum stundum, skal ég segja ykkur... Ég er alveg að missa mig hérna enda svolítið langt síðan ég hef bloggað... Reyndar ekki margt búið að gerast... well, ég er búin að vera með Orra í næstum tvo mánuði núna   allt að gerast... og hey þið sem munið eftir því hversu Írena og Aníta voru áhugasamar um ástarlif mitt hér áður fyrr þá ættuð þið að sjá Þóru núna, spyr alveg á hverjum degi hvernig gangi og sonna, reyndar þá var það eiginlega henni að "kenna" að við Orri byrjuðum saman þannig að kannski á hún rétt á að vita hvernig gengur með hennar verk... En ég ætla að fara að hætta þessu, Orri er kominn og maður má nú ekki vera bara að tölvunördast eitthvað þegar kærastinn er kominn... nei gengur ekki... En allavega... bless í bili... kv. Miðjumanneskjan  P.S. erum að vnna í því að láta aftur inn myndir sem misfórust...
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
Dagsetning
9. febrúar 2010
Dagatal
| febrúar - 2010 | | S | M | Þ | M | F | F | L | | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | | 28 | | Fyrri | Næsti |
|