Jæja, kannski komin tími á eitt stykki frá manneskjunni á miðjunni... nei djók... ég var alltaf í vörn eða marki, ég var sko að æfa mark og vitiði bara að ég varði sko vítaskot frá Hlíf... En þetta var í 9.bekk... Enn glæstari voru tilþrifin í 1. bekk þar sem ég var að æfa með strákum frá 1. upp í 4. bekk og þar á meðal var Jobbi nokkur frá Hellu, stór og mikill sem átti það til að sparka boltanun óþarflega fast í andlitið á mér... well... það gerðist held ég tvisvar, en allavega, ég fékk að sitja í fanginu á þjálfaranum út æfinguna og Sævald var voða næs við mig...
Já þannig er nú það er ég er allt í einu komin með geggjaða skrifræpu... langar bara að segja voða mikið núna... Skólinn alveg að klárast og söngkeppni á fimmtudaginn og BALL á föstudaginn, nú verðum við Helga sko EKKI driverar og ég ætla að skilja símann eftir heima! Ok nei kannski ekki, það er orðinn smá siður hjá mér að hringja í Orra til að segja honum hvað er gaman hjá mér þegar ég er að skemmta mér einhversstaðar, og nei hann fær ekki að koma með því að hann er einfaldlega OF GAMALL fyrir svona framhaldsskólaböll, hann getur bara farið á kaffihús í Vík eða eitthvað þannig...
Ég er alltaf í reið- og hestamennsku nú orðið í skólanum og það er voða gaman, reyndar með pínku pirrandi fólki í hóp sem getur einfaldlega ekki lært að hlusta einu sinni, það er sko meiri svörun og áhugi hjá hestunum heldur en nemendunum stundum, skal ég segja ykkur...
Ég er alveg að missa mig hérna enda svolítið langt síðan ég hef bloggað... Reyndar ekki margt búið að gerast... well, ég er búin að vera með Orra í næstum tvo mánuði núna 

allt að gerast... og hey þið sem munið eftir því hversu Írena og Aníta voru áhugasamar um ástarlif mitt hér áður fyrr þá ættuð þið að sjá Þóru núna, spyr alveg á hverjum degi hvernig gangi og sonna, reyndar þá var það eiginlega henni að "kenna" að við Orri byrjuðum saman þannig að kannski á hún rétt á að vita hvernig gengur með hennar verk...
En ég ætla að fara að hætta þessu, Orri er kominn og maður má nú ekki vera bara að tölvunördast eitthvað þegar kærastinn er kominn... nei gengur ekki...
En allavega... bless í bili...
kv. Miðjumanneskjan 
P.S. erum að vnna í því að láta aftur inn myndir sem misfórust...