....Veður er allajafnan eitthvað sem íslendingar tala of mikið um.
....Veður er líka eitthvað sem pirrar mig mikið þessa dagana
....Veður er líka eitthvað sem kemur í veg fyrir að ég mæti á réttum tíma í skólan.
Þó að stundum fái maður frí í skólanum vegna veðurs var ekki svo, rútan fór og því urðum við Pálína líka að fara!!!!
Vell við byrjuðum á því að festa okkur við Björkina á Hvolsvelli þar sem heil helling af köllum komu að losa okkur.
Jæja við lögðum nú samt í hann og keyrðum hraðast á 70 km á klukkustund. já en sjaldan var það nú svo gott.
Það tók okkur klukkutíma og gott betur en það að komast á selfoss.
Ég vil fara heim leið og það byrtir svo ég verði ekki föst á Selfossi um helgina en kellingarnar á skrifstofunni segja að ég verði að vera hérna í allan dag.
Ég vona svo innilega að veðrið fari að batna, nenni ekki að keyra heim í jafn vondu veðri og var áðan.
Fyrsti tíminn minn féll niður vegna þess að það mættu svo fáir
Svanhidur og Ólína komast ekki í skólan vegna þess að þær eru fastar.
Spurning hvort að Valdís lætur sig hafa það.
Ég er að spá í að flytja til Flórida þar sem er gott veður allt árið.
Ég hata allan snjóinn úti.
Nú ætla ég að fara að læra undir próf sem ég er að fara í á eftir, ef það þá verður vegna veðurs.

Veit alveg að ég var ekki að keyra´á Öxnadalsheiði but örugglega samt svipað vont veður!